Launagreiðendur athugið: um áramótin 2011/2012 tekur Sameinaði Lífeyrissjóðurinn
|
|
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Borgartúni 30, 105 Reykjavík sér um alla innheimtu gjalda til VM. Rafrænar skilagreinar eru á http://www.lifeyrir.is/, tölvupóstur skilagreinar@lifeyrir.is |
Félagsgjald allra félagsmanna VM er 0,8% af heildarlaunum (F 421) |
Styrktar- og sjúkrasjóður VM (S 421) |
| Samkvæmt almennum kjarasamningum VM við SA ber atvinnurekanda að greiða 1% af heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM. Fyrir vélstjóra á fiskiskipum ber útgerð að greiða 0,75% af heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM. Fyrir vélastjóra á kaupskipum ber útgerð að greiða 0,5% af heildarlaunum Styrktar- og sjúkrasjóð VM. Í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana eru aðrar prósentutölur Styrktar- og sjúkrasjóð VM. |
Orlofssjóður (O 421) |
| Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða a.m.k. 0,25% af heildarlaunum í orlofssjóð VM. Undantekningar eru í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana. |
Fræðslusjóður VM (E 421) |
| Félagsmenn VM geta samið um sérstakar greiðslur í fræðslusjóð VM í persónubundnum samningum. Fyrir vélfræðinga sem starfa á rammasamningi ber vinnuveitanda að greiða 1% af heildarlaunum, nema samið hafi verið um annað. Í samningum við ýmis fyrirtæki og stofnanir er kveðið á um greiðslur í fræðslusjóð allt að 1% af heildarlaunum. |
Endurmenntunargjald til IÐUNNAR - fræðsluseturs |
| Málm– og véltæknigreinar (E 460) og netagerð (E463) Greiða ber 0,4% af launum í endurmenntunargjald vegna þeirra sem starfa samkvæmt kjarasamningi VM við SA. |
Starfsendurhæfingarsjóður - innheimtist af lífeyrissjóði |
| Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða í Starfsendurhæfngarsjóð af starfsmönnum. Gjaldið er 0,13% og greiðist með lífeyrisiðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs en ekki með félagsgjöldum til VM. |