- Þarftu að takast á við breytingar í starfi?
- Langar þig til að ná betri færni í starfi?
- Langar þig að nota betur hæfni þína?
- Langar þig að efla kunnáttu þína og þekkingu?
Í síbreytilegu umhverfi okkar reynir á hæfni til þess að bregðast við nýjum aðstæðum. Tækniþróun, samkeppni og alþjóðavæðing gera sífellt meiri og nýjar kröfur til þekkingar, kunnáttu og hæfni starfsmanna.
Áhugi almennings og fyrirtækja á símenntun fer vaxandi. Stjórnendur gera sér grein fyrir því að menntað starfsfólk er forsenda þess að hægt sé að takast á við þær breytingar sem hafa átt sér stað á vinnumarkaðinum á síðustu árum.
Þó stjórnendur hafi oft frumkvæði að símenntun starfsmanna þá ættu starfsmenn einnig sjálfir að sýna frumkvæð og sækjast eftir nýrri þekkingu og reynslu. Þá er sjálfsagt að kanna þá styrki sem bjóðast hjá fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna en ekki síður að láta á það reyna hvort vinnuveitendur eru ekki tilbúnir að koma til móts við ykkur og hvetja þannig til frumkvæðis í símenntunarmálum; oft er hagnaðurinn ekki síður þeirra.