VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna undirritaði samstarfssamning við IÐUNA fræðslusetur þann 15. desember s.l. Með samstarfssamningnum er tryggt að allir félagsmenn VM njóti sömu kjara og aðrir aðilar að IÐUNNI. Einnig var staðfest með samningnum að leita samstarfs við Fjöltækniskóla Íslands um faglega hluta símenntunar vélstjórnarmenntaðra manna.
IÐAN sinnir nú rúmlega 15 þúsund aðildarfélögum, einstaklingum og fyrirtækjum og veitir þjónustu á sviði símenntunar, starfsnáms og námskrárgerðar.
Námsúrræði IÐUNAR fyrir félagsmenn í atvinnuleit