Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Í VM er formaður kjörinn til fjögurra ára í senn en stjórnarmenn og varamenn til tveggja ára. Kosið er með póstkosningu um einstaklinga og sér sérstök uppstillinganefnd um að stinga upp á félagsmönnum til kjörs sem endurspegla breidd félagsins. Allir fullgildir félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnar og varastjórnar hafi þeir stuðning 20 fullgildra félagsmanna. Koma þarf framboði á framfæri á sérstökum félagsfundi uppstillinganefndar sem haldinn er vegna stjórnarkjörs.

Sérstakt fulltrúaráð er einnig starfandi hjá félaginu. Hlutverk þess er að mynda öflugt bakland stjórnar við félagsmenn og fá fleiri félagsmenn að hugmyndavinnu um þróun og starfsemi félagsins.

Gert er ráð fyrir að sett verði upp sérstök kjaranefnd sjómanna. Kjaranefndin er fastanefnd og starfar allt árið. Hlutverk hennar er þríþætt:

  1. Að fjalla um hagsmunamál sjómanna innan félagsins og gera tillögur að afgreiðslu þeirra í stjórn.
  2. Að fylgjast með kjörum sjómanna og bera saman við kjarþróun hjá öðrum hópum.
  3. Að annast kjarasamninga sjómanna.

Heimilt er að stofna aðrar sambærilegar kjaranefndir.

Þriggja manna stjórnir eru einnig kostnar á aðalfundi fyrir sérsjóði félagsins; Styrktar- og sjúkrasjóð, Fræðslusjóð og Orlofssjóð.

VM Fréttir




Pistlar

gudmundur | 13.04.12

Hvernig á að reka samfélag, er til önnur leið?

Mín skoðun hefur alla tíð verið sú að mikil bein og óbein spillin tröllríði samfélaginu og hafi gert í marga áratugi. Farið er framhjá lögum og reglum og ráðherrar jafnt sem þingmenn og fleiri dragi leppa fyrir augun.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli