Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Í VM starfar fulltrúaráð sem er stjórn félagsins til ráðgjafar og stuðnings við ýmis stærri málefni í starfsemi félagsins s.s. stefnumótun, kjarasamninga og meiriháttar framkvæmdir á vegum félagsins.

Fulltrúaráð er skipað 35 mönnum að meðtöldum 9 stjórnarmönnum og 8 varamönnum þeirra. Auk stjórnarmanna og varamanna þeirra eru 18 fulltrúar kjörnir í fulltrúaráðið til tveggja ára á aðalfundi. Fulltrúaráðið skal eftir því sem kostur er endurspegla breidd félagsins með hliðsjón af starfsgreinum, hópum og landshlutum og gætir uppstillinganefnd þess í tillögum sínum um fulltrúa.

Formaður félagsins er jafnframt formaður fulltrúaráðs og boðar hann til fundar þess eftir þörfum en fundir eru haldnir að lágmarki tvisvar sinnum á ári.

Í fulltúaráði VM eru, auk stjórnar og varastjórnar, eftirtaldir félagsmenn.   

 Félagsmaður  Starfar hjá:
 Jón A. Jónsson  Framtak ehf
 Brynjar Viggósson  Björgun ehf
 Jón Kornelíus Gíslason  Marel 
 Jón Ragnarsson  Samskip 
 Garðar Garðarsson  HB-Granda 
 Marteinn Karlsson  Orkuveitu Reykjavíkur
 Trausti Ingólfsson  Samskip 
 Brynjólfur Árnason  Alcan / ÍSAL
 Jóhannes B. Birgisson  Baader á Íslandi
 Kristmundur Skarphéðinsson  HS-Orku hf
 Alfreð Hafsteinsson  Actavis
 Hugi Árbjörnsson  Hampiðjunni
 Jóhann Pétur Gíslason  Síldarvinnslunni
 Svanur Jóhannsson  Framtak ehf
 Helgi Jóhannsson  Ísfell
 Óskar Sverrisson  Síldarvinnslunni
 Örn Friðriksson  Vinnslustöðinni
 Sigurður Kristinsson  Orkuveitu Reykjavíkur

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli