Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Að mörgu er að hyggja þegar sótt er um starf eða þegar leitað er eftir starfsfólki. Talið er að einungis um 35% starfa séu auglýst opinberlega, þ.e. í dagblöðum og tímaritum. Það er því atvinnuleitandans að vera duglegur að finnaþessi störf. Hægt er að fara margar  mismunandi leiðir við atvinnuleit og ekki  nokkur leið að vita hver þeirra kemur til með að ráða úrslitum. Hitt er ljóst að þeim mun fleiri leiðir sem reyndar eru, þeim mun meiri líkur á árangri.

Hér til hliðar eru upplýsingar fyrir félagsmenn í atvinnuleit, atvinnurekendur í leit að starfsmönnjum og ýmsar hagnýtar upplýsingar, sem vonandi gagnast félagsmönnum á vinnumarkaði.

Við hvað vil ég vinna?

Fyrsta skrefið í atvinnuleit vill oft gleymast!  Það er sjálfskoðun. Til þess að ferilskrá og atvinnuleitin öll skili árangri er afar mikilvægt að leggja eftirfarandi spurningar niður fyrir sjálfum sér:

  1. Hverjir eru styrkleikar mínir og veikleikar?
  2. Hvað vil ég? / Á hverju hef ég áhuga?
  3. Hvar munu hæfileikar mínir njóta sín? / Hvers konar starf hentar mér?
  4. Hvert er markmið mitt á vinnumarkaði?

Þegar þessum spurningum hefur verið svarað ætti svarið við tveimur grundvallarspurningum að liggja fyrir:

  1. Í hvers konar umhverfi mun ég helst dafna og ná árangri?
  2. Í hvers konar umhverfi vil ég helst starfa?

Svarið er ekki einfalt og nauðsynlegt að hafa æskilega starfsferilsþróun í huga meðan svörin eru ígrunduð. Með það í huga má ekki eingöngu leita eftir störfum með ákveðnum titli heldur er nauðsynlegt að horfa á starfsumhverfið í heild og þá mögleika sem störf bjóða. Ekki er síður mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvort eitthvað vanti upp á menntun og/eða starfsreynslu svo sett markmið náist.

Hér til hliðar eru flýtileiðir með leiðbeiningum til félagsmanna í atvinnuleit en einnig til þeirra sem vilja hugsa fram í tímann og skipuleggja starfsferil sinn í stað þess að láta hendingu að mestu ráða við hvað þeir vinna og hvar. 

VM aðstoðar félagsmenn sína við að útbúa ferilskrár, gera persónubundna samninga vera þeim yfirhöfuð innan handar.

VM Fréttir

gudni | 06.02.12
Skýrslan sem nú hefur verið lögð fram um starfsemi íslensku lífeyrissjóðanna er viðamikil og bendir á margt sem betur má og mátti fara í starfsemi lífeyrissjóðanna. Í henni er að finna yfirlit og úttekt á starfsemi sjóðanna á árunum 2006 – 2010 og áhrif efnahagshrunsins 2008 á eignir sjóðanna. Ljóst er að Gildi eins og aðrir lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar urðu fyrir miklu tjóni við hrun fjármálakerfisins. Hefur það komið fram með skýrum hætti í ársreikningum Gildis undanfarin ár og einnig í kynningum á ársfundum sjóðsins og sjóðfélagafundum.




Pistlar

gudmundur | 19.01.12

Forsendur kjarasamninga.

Eitt af þeim brýnu verkefnum sem verður að fara í með forgangi, er að skuldamálum einstaklinga og fjölskyldna verði lokið sem fyrst. Þeirri miklu óvissu sem þessir aðilar eru í verði eytt og þeir fái að vita sína stöðu. Það er best fyrir alla að komast á hreint borð með sín mál og geta hafið nýtt upphaf fram á við.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli