Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


01.02.2012

Loðnuverð

Núna þegar loðnuvertíðin stendur sem hæðst er vert að spá aðeins í hvaða verð er verið að borga til sjómanna fyrir loðnuna. Ef við skoðum til samanburðar opinber verð á loðnu í Noregi og Íslandi. Verð á Jan Mayen/Íslands loðnu í Noregi í dag er um 33 krónur á kílóið til bræðslu og um 43 krónur á kílóið til frystingar, miðað við opinbera tölur í Noregi. Á Íslandi eru engar nýlegar opinberar tölur til fyrir loðnu hvorki í frystingu né í bræðslu.
Lesa meira

01.02.2012

Framkvæmdir Rolls Royce við vélbúnað Þórs hafa enn ekki borið árangur

Enn hefur ekki tekist að gera við bilunina sem kom upp í vélbúnaði varðskipsins Þórs. Landhelgisgæslan segir að fulltrúum frá Rolls Royce í Noregi, sem framleiddi vélina, hafi ekki tekist að komast að því hvað veldur biluninni. Í fyrstu var talið líklegt að um galla í eldsneytiskerfi væri að ræða og hafin var leit að mögulegum orsökum þess og margvíslegar breytingar gerðar á eldsneytiskerfi samfara því.
Lesa meira

30.01.2012

Frétt frá VIRK

Gleði í vinnunni eykur vellíðan.
Lesa meira

27.01.2012

TIL VINNU

Nú liggja fyrir tillögur um öflugar aðgerðir sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum starfstengd úrræði, til viðbótar við þau úrræði sem í boði hafa verið. Sérstök áhersla er lögð á hvata og úrræði fyrir langtímaatvinnulausa. Átaki með yfirskriftinni „TIL VINNU“ verður hrint af stað þegar í byrjun árs 2012. Aðgerðir í þágu langtímaatvinnulausra munu hafa forgang í þessu átaki.
Lesa meira

23.01.2012

Yfirlýsing samninganefndar ASÍ vegna endurskoðunar kjarasamninga

Samninganefnd ASÍ hefur í dag ákveðið að segja ekki upp gildandi kjarasamningum þrátt fyrir vanefndir stjórnvalda á þeim fyrirheitum sem gefin voru við gerð þeirra. Ljóst er að mikill meirhluti aðildarfélaga Alþýðusambandsins telur að mikil verðmæti liggi í þeim launahækkunum sem kjarasamningarnir tryggja og að ekki sé forsvaranlegt að grípa til uppsagna þeirra við núverandi aðstæður. Þetta er niðurstaða umfangsmikillar umræðu sem átt hefur sér stað um forsendur kjarasamninga og framgang þeirra undanfarnar tvær vikur meðal samninganefnda rúmlega 50 aðildarfélaga ASÍ. Aðeins þrjú þeirra vildu segja upp samningum.
Lesa meira

18.01.2012

Krossgáta - lausnarorðið er ÓSKAÐIR

Dregið hefur verið í innsendum lausnum í krossgátu VM sá heppni er Lúðvík Davíðsson, Melagötu 5, Neskaupstað og fær hann að launum vetrarhelgaleigu í einu af orlofshúsum VM. VM óskar Lúðvík hjartanlega til hamingju.
Lesa meira

18.01.2012

Nýjar íbúðir í Mánatúni

Nýju íbúðirnar okkar að Mánatúni 3 voru til sýnis núna á laugardaginn 14. janúar á milli kl 13 og 16. Töluvert rennirí félagsmanna var í íbúðirnar þar sem boðið var upp á Kaffi og kleinur á meðan íbúðirnar voru skoðaðar í krók og kima.
Lesa meira



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli